6.3.06

Gautaborg-Álaborg-Kristianstad

Já góðir gestir, þá er ég loksins komin á áfangastad heimsreisunnar og henni því formlega lokið. Ég lenti í miklu veseni við að komast frá London til Danmerkur, þurfti að millilenda i Gautaborg eina nótt og taka ferju til Frederikshavn. Ég viðurkenni ekki að flugklúðrið hafi verið mér að kenna, þó ég geti ekki kennt neinum öðrum um það. Það virðast samt vera einhver álög á mér og ég kemst greinilega aldrei klakklaust frá Stansted til meginlands Evrópu (þið sem voruð með mér í fyrra skiptið: það var sami kall að rífa af miðunum núna og í fluginu til Tékklands, hann boðar greinilega ógæfu).
Hvað sem því líður, ég komst loks til Sunnu (með hjálp vina og ættingja) og eyddi helginni hjá henni í góðu yfirlæti. Á föstudeginum kíktu Sandra og Benni við hjá okkur og við fórum á skauta, kíktum í búðir og drukkum kakao. Um kvöldið fórum við Sunna á háskólafest þar sem bjórinn var seldur á 10 kr danskar og þverröndótt virtist vera þemað. Á laugardeginum hélt Sunna upp á afmælið sitt í félagi við aðra íslenska stelpu, Lísu, og maður lifandi, ég hef ekki farið í annað eins partí í lengri tíma. Sandra og Benni misstu sannarlega af dönsku fjöri, hefði verið enn skemmtilegra ef þau hefðu verið aðeins lengur. Það var limbókeppni, bjórþambs-appelsínu-blöðrusprengju-lakkrísátsboðhlaup og auðvitað Tópas og Opal (og restin af ógeðslega hrísgrjónabrennivíninu sem ég kom með frá Kína). Bleik bolla og bleik kaka eins og fólk gat í sig látið. Sannarlega skemmtilegt partí, eins og Sunnu er von og vísa. Myndir úr heimsókninni má sjá á síðu Sunnu.
Ég komst samt að þeirri niðurstöðu nú um helgina að Danir eru bara ekkert jafn ligeglad og allir eru alltaf að tala um. Reglur og rúðustrik virðast hinsvegar eiga mjög vel við þá. Eftir nokkra umhugsun komst ég að þeirri niðurstöðu að ástæðan fyrir því að Íslendingar halda að Danir séu svona ligeglad er sú að Íslendingar hafa bara hangið með einhverju liði úr Kristjaníu sem veit ekki hvað snýr upp né niður, og er bara ligeglad með það. Já, það er gott að alhæfa.
Og nú er ég komin til Kristianstad, til Gylfa, er að verða búin að taka upp úr töskunum og sé fram á góða tíma. Vantar bara vinnu, þarf að bæta úr því.

Ég ætla að flytja mig yfir á gamla bloggið mitt þannig að ég kveð þessa síðu í bili, allaveganna þangað til við Anna förum aftur á flakk. Allir að skora á Önnu að byrja að blogga sjálfstætt og allir á mig.





<< Home
|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?